Meistaradeildin í kvöld - uppfærð rásröð

02. febrúar 2012
Fréttir
Þá er komið að fyrsta móti Meistaradeildar í hestaíþróttum en það hefst í kvöld klukkan 19:00 í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Eins og flestir vita átti mótið að fara fram á fimmtudag fyrir viku en var fresta vegna veðurs. Þá er komið að fyrsta móti Meistaradeildar í hestaíþróttum en það hefst í kvöld klukkan 19:00 í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Eins og flestir vita átti mótið að fara fram á fimmtudag fyrir viku en var fresta vegna veðurs.


Mikil spenna er fyrir mótinu í kvöld og má gera ráð fyrir sannkallaðri veislu. Hér að neðan er uppfærð rásröð fyrir kvöldið:

Nr Knapar Lið Hestur
1 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Ketill frá Kvistum
2 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ
3 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II
4 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Þokkadís frá Efra-Seli
5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu
6 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hugleikur frá Galtanesi
7 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum
8 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Klerkur frá Bjarnanesi
9 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Indía frá Álfhólum
10 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Hængur frá Hæl
11 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum
12 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Kall frá Dalvík
13 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Hrafndynur frá Hákoti
14 Viðar Ingólfsson Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku
15 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Alfa frá Blesastöðum 1A
16 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
17 Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II
18 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Sóllilja frá Álfhólum
19 Artemisia Bertus Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A
20 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Asi frá Lundum II
21 Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi

Sala á aðgöngumiðum er í fullum gangi í Top Reiter, Líflandi og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Aðgangseyrir er 1.500 krónur. Á sömu stöðum er jafnframt hægt að tryggja sér ársmiða á deildina en hann kostar 5.000 krónur og með ársmiðanum fylgir DVD diskur frá Meistaradeildinni 2011.

Fyrir þá sem sjá sér ekki fært að koma í Ölfushöllina verður sýnt beint frá mótinu á netinu og kostar aðgangur að útsendingunni 499 krónur. Beinu útsendingarnar verða aðgengilegar á www.meistaradeild.is og www.eidfaxi.is. Eins og undanfarin ár verður lifandi staða á heimasíðu deildarinnar.