Meistaradeild í hestaíþróttum auglýsir

29. júlí 2014

Laust er til umsóknar fyrir keppnislið að sækja um að komast í umspil, um þátttökurétt fyrir keppnisárið 2015 við það keppnislið sem var með lægsta heildarskorið í mótaröð MD sem lauk 4.apríl s.l

Þeir aðilar sem hafa áhuga á að sækja um að koma með keppnislið verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði.

  • Fjórir knapar í liði
  • Tilnefningar til knapaverðlauna sl. tvö ár
  • Verða að vera með skráðan árangur á World Ranking lista

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Tölt T1
Fjórgang
Fimmgang

Það er eingöngu forkeppi sú einkunn gildir, enginn úrslit riðin.
Þrír knapar keppa fyrir hvert lið sem sækja um þátttöku.

Umsóknafrestur er til 20.ágúst n.k, umspilið verður fimmtudaginn 28.ágúst kl: 16.00 á félagssvæði Fáks Víðidal.

Allar umsóknir sendist á netfangið info@meistaradeild.is nánari upplýsingar veitir Kristinn Skúlason í síma 822-7009.