Málþing: Hvernig náum við meiri árangri?

22. ágúst 2013
Fréttir
Siggi Sig og Kjarnorka frá Kálfholti/Dalli.is
Fagráð í hrossarækt og Landbúnaðarháskóli Íslands boða til málþings um kynbótakerfið í hrossarækt föstudaginn 6. september kl. 13:00-18:00 í Ásgarði á Hvanneyri.

Fagráð í hrossarækt og Landbúnaðarháskóli Íslands boða til málþings um kynbótakerfið í hrossarækt föstudaginn 6. september kl. 13:00-18:00 í Ásgarði á Hvanneyri.

Dagskrá samanstendur af nokkrum inngangserindum um ýmsar hliðar kerfisins þ.m.t. dómkerfið, dómstörf og sýningar, dómara, kynbótamat o.fl. en síðan taka við opnar umræður og markviss hópavinna með þátttöku málþingsgesta.
Allt áhugafólk um kynbætur íslenska hestsins hvatt til að mæta og taka þátt.

Þátttökugjald: 1000 kr - Greitt á staðnum.

Nauðsynlegt að skrá þátttöku fyrirfram hjá Endurmenntun LbhÍ - www.lbhi.is/namskeid<http://www.lbhi.is/namskeid> eða í síma 433 5000 og netfangið endurmenntun@lbhi.is - fram þarf að koma fullt nafn, kennitala, heimilisfang, sími
og netfang. Hægt er að kaupa hádegisverð í matstofu LbhÍ áður en þingið hefst en nauðsynlegt er að taka það fram við skráningu ef óskað er eftir slíku. Nánari upplýsingar munu birtast á heimasíðu LbhÍ.