Maggi mætir með Óskastein

21. mars 2013
Fréttir
Magnús og Óskasteinn / Dalli
Undirbúningur fyrir Ístölt þeirra allra sterkustu er í fullum gangi enda styttist í úrtökuna sem verður þann 28. mars kl. 18:00 í Skautahöllinni í Laugardal.

Undirbúningur fyrir Ístölt þeirra allra sterkustu er í fullum gangi enda styttist í úrtökuna sem verður þann 28. mars kl. 18:00 í Skautahöllinni í Laugardal. Tekið verður við skráningum í gegnum nýja skráningarkerfi okkar hestamanna á slóðinni http://skraning.sportfengur.com frá 22. – 25. mars n.k. Verð skráningar er kr. 6.000 og getur hver knapi aðeins skráð einn hest vegna takmörkunar á fjölda hesta á svellið.

Óðalsbóndinn á Íbishóli, Magnús Bragi Magnússon mætir með gæðinginn sinn Óskastein frá Íbishóli og verður spennandi að sjá þá Skagfirðinga leika listir sínar á ísnum.