Lokaskráningadagur á Ís-landsmót á Svínavatni 5. mars

01. mars 2011
Fréttir
Þar sem einhverjir hafa áhyggjur af ísnum þá er rétt að segja frá því að hann er afskaplega góður, sléttur og traustur. Þar sem einhverjir hafa áhyggjur af ísnum þá er rétt að segja frá því að hann er afskaplega góður, sléttur og traustur. Skráningar berist á netfangið gudinga@ismennt.is í síðasta lagi í dag, þriðjudaginn 1 mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests. Keppnisgreinar eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru 3.000. kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0307 - 13 - 110496, kt. 480269-7139 í síðasta lagi í dag, þriðjudaginn 1 mars annars verður viðkomandi ekki settur á ráslista. Sendið kvittun á neisti.net@simnet.is  þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa er verið að borga.