Lokakvöld Meistaradeildar Cintamani

06. apríl 2018
Fréttir

Lokakvöld Meistaradeilar Cintamani í hestaíþróttum fer fram á morgun, föstudag, en keppt verður í tölti og flugskeiði. Keppni hefst á slaginu 19:00 í TM Höllinni í Víðidal en keppni hefst á forkeppni í tölti. Þegar því er lokið tekur við flugskeið í gegnum höllina. Það ríkir mikil spenna fyrir lokakvöldin enn mjótt er á munum bæði í einstaklings- og liðakeppninni. Jakob S. Sigurðsson leiðir einstaklingskeppnina en einungis 1,5 stig skilja þá Árna Björn Pálsson að. Í liðakeppninni er það lið Hrímnis / Export hesta sem leiðir en hin liðin fylgja þeim fast eftir en einugist örfá stig skilja á milli liða. 

Höllin opnar kl. 17:00 en boðið verður upp á dýrindis lambalæri, kartöflur, salat og sósur. Trúbadorar munu spila í hléum og að loknum móti í TM veitingasalnum. Því er um að gera mæta tímanlega og tryggja sér gott sæti. Hægt er að kaupa miða inn á TIX.is og ef ekki er uppselt verður restin af miðunum selt við innganginn. Einnig er hægt að horfa beint frá mótinu inn á Stöð 2 Sport og inn á oz.com/meistaradeildin.

Ekki missa af sterkustu tölturum og fljótustu skeiðhestum landsins etja kappi saman.

  Knapi Hestur Faðir Móðir Litur Aldur Lið
1 Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi Þór frá Þúfu í Landeyjum Frigg frá Fossnesi Jörp 13 Lífland
2 Hulda Gústafsdóttir Klókur frá Dallandi Kolfinnur frá Kjarnholtum I Katarína frá Kirkjubæ Rauður 12 Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær
3 Sigurður Sigurðarson Drift frá Hafsteinsstöðum Andri frá Hafsteinsstöðum Orka frá Hafsteinsstöðum Grá 18 Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel
4 Elvar Einarsson Segull frá Halldórsstöðum Rofi frá Hafsteinsstöðum Selma frá Halldórsstöðum Brúnn 14 Gangmyllan
5 Ragnar Tómasson Isabel frá Forsæti Galdur frá Sauðárkróki Lísa frá Mykjunesi Jarpskj. 16 Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær
6 Ævar Örn Guðjónsson Hrappur frá Sauðárkróki Brjánn frá Sauðárkróki Hremmsa frá Sauðárkróki Bleikál. 16 Gangmyllan
7 Hans Þór Hilmarsson Tinna frá Árbæ Aron frá Strandarhöfði Tóa frá Hafnarfirði Brún 15 Hrímnir / Export hestar
8 Viðar Ingólfsson Blikka frá Þóroddsstöðum Kjarval frá Sauðárkróki Þoka frá Hörgslandi II Fífilbleikstj. 12 Hrímnir / Export hestar
9 Árni Björn Pálsson Skykkja frá Breiðholti í Flóa  Kolskeggur frá Oddhóli  Fylking frá Halldórsstöðum Brún 9 Top Reiter
10 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu Gídeon frá Lækjarbotnum Hekla frá Skarði Rauðstj. 12 Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel
11 Reynir Örn Pálmason Líf frá Framnesi Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Veiga frá Búlandi Jarpstj. 8 Ganghestar / Margrétarhof / Equitec
12 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal Ófeigur frá Þorláksstöðum Þoka frá Stykkishólmi Rauð 12 Ganghestar / Margrétarhof / Equitec
13 Hinrik Bragason Björt frá Bitru Aðall frá Nýjabæ Dúkka frá Laugavöllum Jarpur 10 Árbakki / Hestvit / Sumarliðabær
14 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Dalvar  frá Horni I Þóroddur frá Þóroddsstöðum Þula frá Hólum Jarpur 12 Auðsholtshjáleiga
15 Guðmundur Björgvinsson Glúmur frá Þóroddsstöðum Ófeigur frá Þorláksstöðum Vera frá Þóroddsstöðum Brúnn 11 Lífland
16 Teitur Árnason Jökull frá Efri-Rauðalæk Óður frá Brún Spyrna frá Hellulandi Bleikál. 14 Top Reiter
17 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum Vængur frá Eiríksstöðum Vonar-Stjarna frá Bröttuhlíð Jarpskj. 18 Ganghestar / Margrétarhof / Equitec
18 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi Adam frá Ásmundarstöðum Pólstjarna frá Tunguhálsi II Brúnn 10 Oddhóll / Þjóðólfshagi / Efsta-Sel
19 Jakob S. Sigurðsson Straumur frá Skrúð Glotti frá Sveinatungu Sandra frá Skrúð Rauðbles. 10 Lífland
20 Þórarinn Ragnarsson Hákon frá Sámsstöðum  Þokki frá Kýrholti Orka frá Höskuldsstöðum Bleikál. 9 Hrímnir / Export hestar
21 Villiköttur           Top Reiter
22 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Lilja frá Dalbæ Keilir frá Miðsitju Flauta frá Dalbæ Brún 16 Auðsholtshjáleiga
23 Bergur Jónsson Sædís frá Ketilsstöðum Gustur frá Hóli Ör frá Ketilsstöðum Rauðstj. 10 Gangmyllan
24 Bjarni Bjarnason Randver frá Þóroddsstöðum Illingur frá Tóftum Gunnur frá Þóroddsstöðum Rauðskj. 8 Auðsholtshjáleiga