Líkamsbeiting knapans

30. janúar 2017


Fyrirlestur um líkamsbeitingu knapans með Heiðrúnu Halldórsdóttur pílates "dressage instructor". Hún er sérhæfður kennari í líkamsbeitingu knapans sem er undirstaða þess að ná betri árangri í reiðmennsku og að hafa áhrif á betri líkamsbeitingu hestsins. Heiðrún hefur verið í kennslu hjá Janice Dulak í Champaigne, Illinois í Bandaríkjunum, og er búin að vera að læra í 5 ár.

Fyrirlesturinn verður haldinn í Harðarbóli í Mosfellsbæ fimmtudaginn 2. feb. kl 19.30. 
Skyldumæting fyrir þá sem hafa áhuga á reiðmennsku. Takið kvöldið frá. 

Aðgangseyrir kr 1000,-
Kv. stjórn FT