Líflandsmót Léttis 15.apríl

12. apríl 2017

Líflandsmót Hestamannafélagsins Léttis verður haldið í Léttishöllinni 15. apríl.

Keppnisgreinar:

Barnaflokkur: Tölt T1 og Fjórgangur V1
Unglingaflokkur: Tölt T1 og Fjórgangur V1.
Ungmennaflokkur: Tölt T1 og Fjórgangur V1.
Opinn flokkur: Fimmgangur (þó aðeins börn, unglingar og ungmenni).

(Í öllum greinum er einn inn á í einu).

Skráning fer fram á http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Skráningargjald er 2000 kr. hver skráning og greiða þarf við skráningu.
Skráningu líkur fimmtudaginn 13. apríl.

Einni verður keppt á mótinu í pollaflokki (9 ára og yngri) og skráning í þann flokk fer fram á staðnum.

Allir krakkar sem keppa þurfa að vera skráðir í hestamannafélag, hægt er að skrá í Létti á lettir@lettir.is  (ath að börn og unglingar eru gjaldfrjáls í Létti)

Æskulýðsnefnd Léttis