Líflandsmót Fáks

23. apríl 2014
Fréttir
Líflandsmót Fáks verður haldið 26. og 27. apríl. Þar sem mótið hefur stækkað frá ári til árs verður það í fyrsta skipti á tveimur dögum. Búið er að bæta við tveimur keppnisgreinum en þær eru fimi og slaktaumatölt.

Líflandsmót Fáks verður haldið 26. og 27. apríl. Þar sem mótið hefur stækkað frá ári til árs verður það í fyrsta skipti á tveimur dögum. Búið er að bæta við tveimur keppnisgreinum en þær eru fimi og slaktaumatölt. Skráningargjöld eru aðeins 1.800 kr á hverja skráningu en skráning verður frá miðnætti 21. og fram að miðnætti 23. apríl á http://skraning.sportfengur.com/   (Veljið skráningu, mót, félag og svo fylla út reitina)

Vegleg þátttökuverðlaun frá Líflandi! Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessu skemmtilega móti

Keppt verður í tölti, slakataumatölti, fjórgangi, fimi og fimmgangi, nema í barnaflokki en þar verður keppt í T7 í staðinn.