Leyfður beislisbúnaður 2023

03. apríl 2023
Fréttir
Hersi frá Húsavík riðið við íslenskar stangir knapi Helga Una Björnsdóttir

Á ársþingi FEIF í febrúar síðastliðnum var listi yfir búnað sem leyfður er í keppni og kynbótasýningum samþykktur í stað þess að hafa lista yfir bannaðan búnað sem áður var í gildi. 

Reglurnar er hægt að nálgast á heimasíðu FEIF ásamt handbók um búnaðinn og fleira. 

Listinn yfir leyfðan búnað er til í íslenskri þýðingu og hægt er að skoða hann hér með hlekkjum inn á FEIF síðuna. 

Í stuttu máli er listinn þannig að hringamél með lausum hringjum (hefðbundin hringamél), D-mél og fastir sporöskjulaga hringir eru leyfðir, óbrotin, einbrotin og tvíbrotin, með eða án tunguboga.

Reiðmúlar sem leyfðir eru með hringamélum eru þýskur múll, enskur múll með eða án skáreimar, mótaður múll með skáreim, mexíkóskur krossmúll og spangamúll ásamt Micklem (oft kallað tamningabeisli en án klemmu sem tengist í mélin við múlinn). 

Þ-mél má aðeins nota með enskum múl.

Hringamél eru ekki leyfileg með með festingum milli méla og múls, með stangakeðju eða með festimöguleikum á aðskildum hringjum fyrir höfuðleður eða tauma. 

Íslenskar stangir eru leyfðar með einbrotnum eða tvíbrotnum mélum en ekki með einjárnung eða föstum mélum., læsimöguleikum eða þar sem mélin renna gegnum hringi. 

Pelham beisli er leyfilegt í keppni en ekki kynbótasýningum, og ríða skal með tvo tauma. Pelham má hafa óbrotin, einbrotin eða tvíbrotin mél og fasta tengingu við stangir. 

Þegar riðið er við íslenskar stangir eða pelham er aðeins leyfilegt að ríða við efri múl, þ.e múlar með skáreim eru bannaðir

Mélalaus beislisbúnaður úr mjúku efni án málma eða vilíka efni inni í búnaðinum er leyfður en ekki mélalaus búnaður með stangaráhrifum.

Ákvörðun FEIF um að taka upp lista yfir leyfðan búnað í stað þess gamla yfir bannaðan búnað er til einföldunar á reglunum því "bannaði listinn" var að verða býsna langur og erfiður að eiga við. 

Landssambandið hvetur alla keppendur, dómara og mótshaldara að kynna sér listann vel nú þegar keppnistímabilið hefst af fullri alvöru.