Leiðtogasnámskeið FEIF fyrir ungt fólk

04. september 2019
Fréttir
Hópurinn sem tók þátt í leiðoganámskeiði FEIF í Hveragerði haustið 2018

FEIF og LH auglýsa eftir þátttakendum á fjórða leiðtoganámskeið FEIF fyrir ungt fólk á aldrinum 18-26 ára. Námskeiðið er haldið helgina 22-24. nóvember 2019 í Egmond-Binnen í Hollandi.

FEIF vill hvetja ungt fólk áfram því þau eru leiðtogar framtíðarinnar.  Með það að leiðarljósi hefur æskulýðsnefnd FEIF sett saman röð námskeiða þar sem kenndar eru leiðir til að efla leiðtogahæfni i samskiptum við bæði hesta og menn.

Námskeiðið er bæði fræðilegt og verklegt en þátttakendur þurfa ekki að koma með hesta.  Hámarksfjöldi þátttakenda er 35 manns í heild

Fyrirlesarar eru:

Leo Hans – human behaviour expert

Bert Bos -  human behaviour expert

Marije Rauwerda - equine behavioural coach

Ferry Ferwerda - fitness coach 

Dorien Jeltema - intercultural self-analysis

Trix Dries - intercultural self-analysis

Kostnaður: Þátttakendur greiða 220 euro (31.000kr ísl) í námskeiðgjald og innifalið í því er fæði og gisting. Engin ferðakosnaður er innifalinn.

Námskeiðið hefst föstudaginn 22.nóvember kl 16.30 og endar sunnudaginn 24. nóvember (rétt eftir hádegi).

Staðsetning námskeiðs er Groepsaccommodatie Broekakkers, Noordvelderweg 5, 1935 BP, Binnen-Egmond

Skráning: Þátttakendur verða að skrá sig í gegnum æskulýðsfulltrúa í sínu landi eða á skrifstofur síns landssambands. Aðeins tveir frá hverju landi komast að en hægt verður að komast á biðlista. Íslenskir þátttekendur þurfa að skrá sig fyrir sunnudaginn 15. september 2019 á þessu eyðublaði

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við skrifstofu LH í síma 514-4030

Hlökkum til að sjá ykkur

Gundula Sharman FEIF Direktor of Youthwork & Stella Timmerman NSIJP