Leiðin að gullinu- dagskrá

05. desember 2022
Fréttir
Dagskrá menntadagsins er smekkfull af spennandi sýnikennslum.

Leiðin að Gullinu -Menntadagur landsliðsins í hestaíþróttum í TM reiðhöllinni í Víðidal, 10. desember klukkan 10:30-15:30.

Það verður frábær dagskrá á menntadegi landsliðslins á laugardaginn þegar landsliðsknapar okkar halda sýnikennslur með með mismunandi þema og áherslum yfir daginn. Fræðsla og fróðleikur fyrir alla áhugasama hestamenn, á öllum stigum hestamennskunnar verður í boði þar sem landsliðsknaparnir veita innsýn í undirbúning sinn og þjálfun í aðdraganda HM í sumar. 

Dagskrá :
10:30 – 12:10, sýnikennslur
12:10 – 13:30, matarhlé
13:30 - 15:10, sýnikennslur

Fyrri hluti 10:30-12:10 

 1.   Þjálfun  í upphafi vetrar
Kennarar : Benjamín Sandur og Guðmundur Björgvinsson
Benjamín og Gummi ætla að fjalla um upphaf vetrarþjálfunar. Hvaða atriði ber að hafa í huga í upphafi vetrar, aðlögun þjálfunar, styrkur, þol og mýkt. 

 2.   Tölt -T2
Kennarar: Ásmundur Ernir Snorrason og Viðar Ingólfsson
Viðar og Ási eru margreyndir knapar í keppni í slaktaumatölti, og ætla að leiða áhorfendur í allan sannleikann þegar kemur að undirbúningi undir T2. Hvernig er hestinum kennt að ganga tölt á slökum taum? Hverjar eru forsendurnar? 

 3.     Þjálfun kappreiða skeiðhesta, 100, 150 og 250 m skeið
Kennarar: Konráð Valur Sveinsson , Sigursteinn Sumarliðason
Konráð og Sigursteinn eru meðal alfljótustu skeiðknapa heimsins í dag. Þeir ætla að fræða um uppbyggingu og þjálfun kappreiðaskeiðhesta og áherslur í mismundandi vegalengdum kappreiðanna. Start úr rásbásum eða fljótandi start og ýmislegt spennandi. 

 4.   Tölt T1
Kennarar:  Jakob Svavar Sigurðsson og Helga Una Björnsdóttir
Jakob og Helga Una ætla að fjalla um uppbyggingu og þjálfun keppnishesta í tölti T1. Hvað þarf til? Hvernig ríðum við hraðabreytingar? Þau koma sannarlega ekki að tómum kofunum þegar kemur að þjálfun ofurtöltara. 

12:10-13:30 Matarhlé 
Veislumatur í veislusal reiðhallarinnar 2. hæð.

Seinni hluti - 13:30-15:30 

5.     Gæðingaskeið
Kennarar: Elvar Þormarsson og Hans Þór Hilmarsson
Hans og Elvar eru miklir skeiðgarpar og ætla að fjalla um gæðingaskeið. Þeir munu ræða um tæknilega útfærslu á þvi að leggja á skeið. Aðdragandi, niðurtaka, skeiðkafli og niðurhæging. 

 6.   Fjórgangur
Kennarar: Jóhanna Margrét Snorradóttir og Ragnhildur Haraldsdóttir
Ragga og Hanna Magga hafa átt gríðarlega góðu gegni að fagna í fjórgangi og þeirra sýnikennsla miðar að því að fræða um áherslur í þjálfun fjórgangshesta. 

7.     Fimmgangur
Kennarar:  Eyrún Ýr Pálsdóttir og Sara Sigurbjörnsdóttir
Eyrún og Sara eru fyrrverandi og núverandi Íslandsmeistarar í fimmgangi og þær ætla að kafa inn í þjálfun og uppbyggingu fimmgangshestsins og hvað ber að hafa í huga við þjálfun hans. 

8.     Hvers vegna æfingar?
Kennarar: Árni Björn Pálsson og  Teitur Árnason
Árni Björn og Teitur loka deginum með sýnikennslu um æfingar við þjálfun, tilgang þeirra og notkun við þjálfun reið- og keppnishesta. 

Það er ljóst að dagskráin verður fróðleg og skemmtileg og því er lag fyrir alla fróðleiksþyrsta hestamenn að taka daginn frá og kíkja á okkar allra færasta fagfólk í greininni gefa innsýn í sinn hugarheim þegar kemur að uppbyggingu og þjálfun hestsins. 

Flottar veitingar á staðnum, og þetta er kjörinn vettvangur til þess að hitta hestafólk og læra. 

Miðasala fer fram í vefverslun LH. og verslun Líflands Lynghálsi

Miðaverð í forsölu er kr. 4000- (fullt verð á staðnum kr. 5.000)