Landsmótsnefnd á Hvolsvelli

07. september 2011
Fréttir
Landsmótsnefndin er sannarlega á ferð og flugi þessa dagana og verður í Hvoli á Hvolsvelli annað kvöld 8. september. Landsmótsnefndin er sannarlega á ferð og flugi þessa dagana og verður í Hvoli á Hvolsvelli annað kvöld 8. september.
Fundurinn hefst kl. 20:00. Landsmótsnefndin er ánægð með þá fundi sem haldnir hafa verið og vonast til að sjá Sunnlendinga fjölmenna í Hvol til að taka þátt í umræðum um málefni landsmótanna og þiggja kaffisopa.

Föstudagskvöldið 9. september verður nefndin svo í Reiðhöllinni í Víðidal kl. 18:00.

Síðasti fundurinn verður svo í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi 13. september kl. 20:00.