Landsmót: Sölustjóri auglýsinga

17. desember 2009
Fréttir
Sölustjóri auglýsingamála – 100% starf.  Landsmót hestamanna, sem haldið verður 27. júní - 4. júlí 2010 á Vindheimamelum í Skagafirði, dagana 27. júní - 4. júlí 2010, leitar að öflugum starfsmanni fram til loka júlímánaðar. Sölustjóri auglýsingamála – 100% starf.  Landsmót hestamanna, sem haldið verður 27. júní - 4. júlí 2010 á Vindheimamelum í Skagafirði, dagana 27. júní - 4. júlí 2010, leitar að öflugum starfsmanni fram til loka júlímánaðar. Starfið felst í umsjón með sölu auglýsinga, kynningarbása og allri auglýsingavöru og þjónustu sem í boði verðu á mótinu sem og reikningagerð og eftirfylgni auglýsingamála á mótinu sjálfu.

Æskilegt er að viðkomandi hafi mikla reynslu að sölustörfum og mjög æskilegt er að viðkomandi hafi innsýn í hestageirann. Kostur er ef viðkomandi er með viðskiptafræði- eða rekstrarmenntun.

Ráðning er frá janúar til 31. júlí 2010.  Um er að ræða 100% starf.

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn, ásamt ferilskrá á netfangið: jona@landsmot.is

Umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.