Landsmót í Eyjafjörð

03. nóvember 2011
Fréttir
Fundarmenn á Akureyri í gær.
Á opnum fundi sem haldinn var á Akureyri átti sér stað málefnaleg umræða um Landsmótahald í Eyjafirði og almennt um stöðu Landsmóta á Íslandi. Á opnum fundi sem haldinn var á Akureyri átti sér stað málefnaleg umræða um Landsmótahald í Eyjafirði og almennt um stöðu Landsmóta á Íslandi.

Flestir sem til máls tóku töldu seinagang í ákvarðanatöku um landsmótsstað sem og óvissu um framtíðarskipulag Landsmóta gera félögunum erfitt fyrir. Vonuðust menn eftir að sátt myndi nást á landsvísu um málið í heild og því komið í farveg til lengri tíma.

Þórgnýr Dýrfjörð frá Akureyrarstofu hélt stutta tölu um mikilvægi Landsmóts hestamanna fyrir byggðarlagið og lýsti yfir vilja til að koma að hverskonar viðburðum tengdum hestum í firðinum. Í lok fundar var neðangreind yfirlýsing samþykkt:
 
“Opinn fundur um framtíð landsmótahalds í Eyjafirði, boðaður af stjórnum hestamannafélaganna Funa og Léttis, haldinn í Búgarði á Akureyri 2. nóvember 2011, telur að röðin sé komin að Eyjafirði og að næsta Landsmót sem haldið verður á norðurlandi skuli haldið þar”.