Landsmót hestamanna 2028 og 2030

24. maí 2023
Fréttir
Landsmót hestamanna er fjöregg mótahalds í hestamennsku á Íslandi

Landsmót hestamanna ehf. auglýsir eftir umsóknum hestamannafélaga til mótshalds á Landsmótum hestamanna árin 2028 og 2030.

Umsóknum skulu fylgja greinargerðir, teikningar af viðkomandi svæði og stutt lýsing á staðarháttum ásamt áætlun um rekstur mótsins.

Nauðsynlegt er að umsókn fylgi upplýsingar um fjölda hesthúsaplássa á og við mótssvæði sem og fjöldi gistirýma í nágrenni við mótssvæði. Ef fleiri en eitt félag standa að umsókninni saman skal koma fram hvaða félög það eru.

Umsækjendum er bent á að kynna sér vel lög og reglugerðir LH er varða undirbúning og framkvæmd landsmóta sem má finna í lögum og reglum á vef LH,  https://www.lhhestar.is/is/log-og-reglur

 ásamt reglum og leiðbeiningum um kynbótasýningar sem nálgast má á vef Ráðgjafarmiðstöðvar Landbúnaðarins https://www.rml.is/is/kynbotastarf/hrossaraekt/kynbotasyningar

 Eftir að umsóknarfresti lýkur munu stjórnir LH og LM ehf. boða til fundar á mótsvæðum umsækjenda. Á fundina skulu umsóknaraðilar mæta ásamt fulltrúum viðkomandi sveitastjórnar/sveitastjórnum. Á fundinum skal fara fram kynning á svæðinu af hálfu umsóknaraðila.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2023 og skal senda umsóknir á netfangið lh@lhhestar.is.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa LH, 514-4030, lh@lhhestar.is.