Landsmót 2010 byrjar degi fyrr

13. nóvember 2009
Fréttir
Töluverð umræða hefur verið um að dagskrá Landsmóts undanfarin ár hafi verið of þéttskipuð.  Á opnum fundi um Landsmót sem haldinn var í október 2008, stuttu eftir að síðasta Landsmóti lauk, voru fundarmenn almennt sammála að létta þyrfti á dagskránni og gera þyrfti ráð fyrir fleiri hléum og þá sérstaklega með helgardagskránna í huga.  Töluverð umræða hefur verið um að dagskrá Landsmóts undanfarin ár hafi verið of þéttskipuð.  Á opnum fundi um Landsmót sem haldinn var í október 2008, stuttu eftir að síðasta Landsmóti lauk, voru fundarmenn almennt sammála að létta þyrfti á dagskránni og gera þyrfti ráð fyrir fleiri hléum og þá sérstaklega með helgardagskránna í huga.  Við mótun keppnis- og kynbótadagskrár á Vindheimamelum 2010 var sérstaklega litið til þessa þáttar.  Eftir mikla yfirlegu og vangaveltur hefur stjórn og framkvæmdanefnd Landsmóts ehf. nú samþykkt dagskrá næsta Landsmóts þar sem bryddað er uppá þeirri nýbreytni að hefja Landsmót á sunnudegi í stað mánudags eins og reyndin verið hefur undanfarin mót.  Með þessu telja mótshaldarar að létta megi helgardagskránna aðeins og lýkur mótinu t.a.m. nú klukkustund fyrr á sunnudegi miðað við dagskrá Landsmóts 2008.   

Með því að gera sunnudag (27. júní) að upphafsdegi mótsins er ætlunin að byrja mótið á svo kölluðum æskulýðsdegi með forkeppni barna og unglinga ásamt skemmtilegheitum fyrir unga fólkið. Þá verði sérstakur knapafundur fyrir keppendur í þessum aldursflokki að morgni sunndags og að lokinni keppni þann dag er gert ráð fyrir léttri kvölddagskrá fyrir unga hestamenn.

Þess má jafnframt geta að við mótun dagskrár Landsmóts 2010 er ætlunin að kvölddagskráin verði meira hestatengd og að öll markaðssetning mótsins miði að því að koma þeim skilaboðum á framfæri að Landsmót er ekki almenn útihátíð heldur fjölskylduhátíð hestamanna!

Dagskráin er að venju birt með fyrirvara en hana má sjá í heild sinni á heimasíðu landsmóts:  www.landsmot.is