Landsliðshópar LH 2020 kynntir

23. janúar 2020
Fréttir
A-landsliðshópur LH 2020

Landssamband hestamannafélaga kynnti landsliðshópa LH fyrir árið 2020 í Líflandi í dag, 23. janúar. Landsliðsþjálfarar LH, Sigurbjörn Bárðarson þjálfari A-landsliðs og Hekla Katharína Kristinsdóttir þjálfari U-21 árs landsliðs tilkynntu knapana sem valdir hafa verið í hópana. Við val á knöpum í landsliðshópana er tekið tillit til árangurs í keppni, reiðmennsku, hestakosts og íþróttamannslegrar framkomu.

A-landsliðshóp LH 2020 skipa:

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Hestamannafélaginu Herði
Árni Björn Pálsson, Hestamannafélaginu Fáki
Ásmundur Ernir Snorrason, Hestamannafélaginu Geysi
Bergþór Eggertsson, Þýskalandi
Guðmundur Björgvinsson, Hestamannafélaginu Geysi
Gústaf Ásgeir Hinriksson, Hestamannafélaginu Fáki
Hanna Rún Ingibergsdóttir, Hestamannafélaginu Sörla
Haukur Tryggvason, Þýskalandi
Helga Una Björnsdóttir, Hestamannafélaginu Þyt
Hinrik Bragason, Hestamannafélaginu Fáki
Hulda Gústafsdóttir, Hestamannafélaginu Fáki
Jakob Svavar Sigurðsson, Hestamannafélaginu Dreyra
Jóhann Skúlason, Danmörku
Konráð Valur Sveinsson, Hestamannafélaginu Fáki
Olil Amble, Hestamannafélaginu Sleipni
Ragnhildur Haraldsdóttir, Hestamannafélaginu Sleipni
Siguroddur Pétursson, Hestamannafélaginu Snæfellingi
Sigursteinn Sumarliðason, Hestamannafélaginu Sleipni
Teitur Árnason, Hestamannafélaginu Fáki
Viðar Ingólfsson, Hestamannafélaginu Fáki
Þórarinn Eymundsson, Hestamannafélaginu Skagfirðingi
Þórarinn Ragnarsson, Hestamannafélaginu Smára

U-21 árs landsliðshóp LH 2020 skipa:

Arnar Máni Sigurjónsson, Hestamannafélaginu Fáki
Benedikt Ólafsson, Hestamannafélaginu Herði
Benjamín Sandur Ingólfsson, Hestamannafélaginu Fáki
Bríet Guðmundsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti
Egill Már Þórsson, Hestamannafélaginu Létti
Glódís Rún Sigurðardóttir, Hestamannafélaginu Sleipni
Guðmar Freyr Magnússon, Hestamannafélaginu Skagfirðingi
Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir, Hestamannafélaginu Sleipni
Hafþór Hreiðar Birgisson, Hestamannafélaginu Spretti
Hákon Dan Ólafsson, Hestamannafélaginu Fáki
Katla Sif Snorradóttir, Hestamannafélaginu Sörla
Kristófer Darri Sigurðsson, Hestamannafélaginu Spretti
Thelma Dögg Tómasdóttir, Hestamannafélaginu Smára
Sylvía Sól Magnúsdóttir, Hestamannafélaginu Brimfaxa
Viktoría Eik Elvarsdóttir, Hestamannafélaginu Skagfirðingi
Védís Huld Sigurðardóttir, Hestamannafélaginu Sleipni
Ylfa Guðrún Svafarsdóttir, Hestamannafélaginu Fáki 

Í upphafi keppnistímabils eru gerðar líkamlegar mælingar á knöpunum, gerð eru styrktarpróf, þolpróf og jafnvægis- og hreyfimynsturspróf og boðið er upp á ýmsa fræðslu og fyrirlestra yfir árið.

Laugardaginn 11. apríl verður fjáröflunarmót landsliðsnefndar, “Allra sterkustu”, haldið í TM-reiðhöllinni í Víðidal. Mótið er með léttu yfirbragði og þar mætast landsliðsknaparnir með sína bestu hesta.

Stærsta landsliðsverkefni ársins er Norðurlandmótið sem haldið verður í Svíþjóð í byrjun ágúst. Knapar í landsliðshópum LH eru í forvali þegar kemur að landliðsverkefnum en einnig er mögulegt fyrir knapa utan landsliðshópanna að gefa kost á sér og sínum hestum í landsliðsverkefnin, með því að samband við landsliðsþjálfara eða senda tölvupóst á lh@lhhestar.is.