Landslið í hestaíþróttum fyrir HM í Berlín

15. júlí 2019
Fréttir

 Landslið Íslands fyrir Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín var kynnt í verslun Líflands í dag en Lífland er einn aðal styrktaraðili landsliðsins.

Sigurbjörn Bárðarson landsliðþjálfari fór yfir val á knöpum og hestum í liðið. Við val á landsliðinu var horft til árangurs á þremur WorldRanking-mótum og var Íslandsmótið í byrjun júlí síðasta af þessum þremur mótum. Einnig var horft til árangurs íslenskra knapa á stórmótum erlendis.

Fjórir knapar urðu heimsmeistarar 2017, þeir hafa rétt til að verja sína titla á HM í Berlín og eiga því öruggt sæti í liðinu. Sjö knapar eru valdir í íþróttakeppni í flokki fullorðinna og fimm knapar í ungmennaflokki. Að auki verða sex hross frá Íslandi í kynbótasýningu á mótinu.

Hér má sjá lista yfir fullskipað liðið og keppnisgreinar sem hver tekur þátt í. 

 Heimsmeistarar frá 2017

  • Jakob Svavar Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey keppa í fjórgangi og tölti
  • Gústaf Ásgeir Hinriksson og Sproti frá Innri-Skeljabrekku keppa í fimmgangi, gæðingaskeiði og slaktaumatölti
  • Konráð Valur Sveinsson og Losti frá Ekru keppa í 100m skeiði,  gæðingaskeiði og 250m skeiði
  • Máni Hilmarsson og Lísbet frá Borgarnesi keppa í fjórgangi og slaktaumatölti

 Fullorðnir  

  • Árni Björn Pálsson og Flaumur frá Sólvangi keppa í fjórgangi og slaktaumatölti
  • Ásmundur Ernir Snorrason og Frægur frá Strandarhöfði keppa í fjórgangi og slaktaumatölti
  • Bergþór Eggertsson og Besti frá Upphafi keppa í 250m skeiði, gæðingaskeiði og 100m skeiði
  • Guðmundur Björgvinsson og Glúmur frá Þóroddsstöðum keppa í 100m skeiði og 250m skeiði
  • Jóhann Rúnar Skúlason og Finnbogi frá Minni-Reykjum keppa í tölti og fjórgangi
  • Olil Amble og Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum keppa í fimmgangi, tölti og gæðingaskeiði
  • Teitur Árnason og Dynfari frá Steinnesi keppa í gæðingaskeiði, 100m skeiði og 250m skeiði

 Ungmenni  

  • Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Koltinna frá Varmalæk keppa í tölti og fjórgangi
  • Benjamín Sandur Ingólfsson og Messa frá Káragerði keppa í gæðingaskeiði, 250m skeiði og 100m skeiði
  • Glódís Rún Sigurðardóttir og Trausti frá Þóroddsstöðum keppa í fimmgangi, gæðingaskeiði, slaktaumatölti og 100m skeiði
  • Hákon Dan Ólafsson og Stirnir frá Skriðu keppa í fjórgangi og slaktaumatölti
  • Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Bjarkey frá Blesastöðum keppa í fimmgangi og gæðingaskeið

 Kynbótahross:

  • Elja frá Sauðholti 7v. og eldri, knapi Árni Björn Pálsson
  • Nói frá Stóra-Hofi 7v. og eldri, knapi Árni Björn Pálsson
  • Eyrún Ýr frá Hásæti 6v., knapi Eyrún Ýr Pálsdóttir
  • Spaði frá Barkarstöðum 6v., knapi Helga Una Björnsdóttir
  • Mjallhvít frá Þverholtum 5v., knapi Þórður Þorgeirsson
  • Hamur frá Hólabaki 5v., knapi Tryggvi Björnsson

Mikill hugur er í liðsmönnum og væntingar um góðan árangur á mótinu. Hestarnir fara með Icelandair Cargo áleiðis til Berlínar þann 28. júlí og þeim fylgja nokkrir knapar og fulltrúi landsliðsnefndar. Landsliðið flýgur svo út 31. júlí og mótið hefst með setningarathöfn sunnudaginn 4. ágúst.