Landsbankamót Sörla

16. mars 2009
Fréttir
Annað Landsbankamót vetrarins í Sörla verður haldið 21. mars kl.14:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Annað Landsbankamót vetrarins í Sörla verður haldið 21. mars kl.14:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt er í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms.


Sýna skal hægt tölt aðra leið og frjálsa ferð hina, eftir fyrirmælum þular. Fimm til tíu efstu keppa til úrslita sem eru riðin strax að lokinni forkeppni. Auk þessa er keppt í 100 m. skeiði. Mótin eru opin öllum hestamönnum.

Flokkar í boði:

1. flokkur
2. flokkur karlar

2. flokkur konur

3. flokkur (lítið vanir)

Heldrimannaflokkur 50+

Ungmenni

Unglingar

Börn

Pollar – skipt í hópa þeirra sem ríða sjálfir og þeirra sem teymt er undir.

100 m skeið

Skráning:

Skráningargjald er kr. 1500 fyrir alla flokka nema polla 1000.
Skráning er frá kl. 11:00-13:00. Posi á staðnum.

Keppendur athugið: Greiða skal skráningagjald við skráningu – ekki síðar. Ekki verður tekið við skráningu eftir kl. 13:00.

Allir að láta sjá sig og byrja að sanka að sér stigum.

Mótanefnd Sörla