Lágmörk á Íslandsmót 2019

30. mars 2019
Fréttir

Skv lögum og reglum LH ber keppnisnefnd að gefa út lágmörk fyrir Íslandsmót á hverju ári, þremur mánuðum fyrir Íslandsmót.   Það er parið, hesturinn og knapinn sem ná þurfa eftirfarandi lágmörkum.   Vakin er athygli á því að einkunnir parsins mega vera allt að tveggja ára gamlar.  Einkunnir sem nást í T3, V2, F2, T4 duga til þátttöku á Íslandsmóti. 

Tekin var ákvörðun um að setja þau þar sem gömlu meistaraflokkslágmörkin voru og eru þau sem hér segir:

Tölt  T1                        6,5

Fjórgangur V1               6,2

Fimmgangur F1             6,0

Tölt T2                          6,2

Gæðingaskeið PP1        6,5

250 m skeið                  26 sekúndur

150 m skeið                  17 sekúndur

100 m skeið                  9 sekúndur

 

Keppnisnefnd LH