KYNNINGARMYNDBAND AF ÍSLENSKA HESTINUM Á 250 VEFSÍÐUM

23. mars 2012
Fréttir
Kynningarmyndband sem LH lét gera af íslenska hestinum hefur nú farið í dreifingu um heim allan í gegnum heimasíðu www.fei.org sem eru regnhlífasamtök allra hestakynja heimsins. Kynningarmyndband sem LH lét gera af íslenska hestinum hefur nú farið í dreifingu um heim allan í gegnum heimasíðu www.fei.org sem eru regnhlífasamtök allra hestakynja heimsins. Myndbandið sem má sjá hér http://www.youtube.com/watch?v=R52H638wixc hefur farið líkt og eldur um sinu og við hér hjá Landsmóti höfum nú þegar orðið verulega vör við jákvæða umfjöllun og fyrirspurnir.
Vonandi gefur þetta íslenska hestinum byr undir báða vængi og stuðlar að jákvæðri markaðssetningu á honum og landinu okkar.