Kraftur í Ástund

18. desember 2009
Fréttir
Þórarinn Eymundsson mun árita myndina Kraftur  í Ástund Austurveri  á laugardaginn 19.des, milli 14-16. Frábært tækifæri fyrir hestamenn að hitta Þórarinn leggja fyrir hann spurningar og fá sér kaffisopa um leið og Þeir versla jólagjafir hestamannsins. Þórarinn Eymundsson mun árita myndina Kraftur  í Ástund Austurveri  á laugardaginn 19.des, milli 14-16. Frábært tækifæri fyrir hestamenn að hitta Þórarinn leggja fyrir hann spurningar og fá sér kaffisopa um leið og Þeir versla jólagjafir hestamannsins. “Myndin fjallar um hestinn Kraft og knapann Þórarinn Eymundson. Þeir eru miklir félagar og sigursælt
par á keppnisvöllum á Íslandi. Þeim stendur til boða að taka þátt í Heimsmeistaramóti íslenska hestsins
í Hollandi 2007 og Tóti þarf að taka erfiðustu ákvöðunina á ferli sínum. Íslenski hesturinn hefur verið einangraður
á eyjunni úti í norðri í meira en 1000 ár og vegna smithættu má ekki flytja hesta sem fara út heim til landsins aftur.
Fylgst er með þeim félögum hér heima og á heimsmeistaramótinu, velgengni en einnig efasemdum og sálarstríði knapans.

Einlæg og hrífandi mynd um samband hests og manns.

Ástund Austurveri Háaleitisbraut 68