Kortasjáin tæpir 12.000 km

25. janúar 2017

Vinna við Kortasjá LH er jöfn og stöðugt bætast við kílómetrar af reiðleiðum um landið okkar. Nú síðast var verið að setja inn um 217 km af reiðleiðum i Árborg og Flóahreppi. Heildarlengd reiðleiða er því 11.824 km í dag. 

Einnig er búið að setja inn vegvísa í Mosfellsbæ, 20 stk. 

Slóðin á Kortasjánna er: http://map.is/lh/

Það er sem fyrr ferða- og samgöngunefnd LH sem stendur að verkefninu.