KOMPUDAGUR í Reiðhöllinni !

12. nóvember 2010
Fréttir
Eins manns rusl er annars manns dýrgripur! Kompudagur verður haldinn í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 4.des. n.k. frá  kl. 11:00 – 17:00. Eins manns rusl er annars manns dýrgripur! Kompudagur verður haldinn í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 4.des. n.k. frá  kl. 11:00 – 17:00. Nú er um að gera að losa úr skápum og geymslu fatnað, leirtau, bækur, listmuni og hvað annað sem hægt er að koma í verð.
Prútta, selja eða gera góð kaup. Panta þarf borð fyrir 1.des. n.k.  – stærð  180 x 80 og leigan er  kr. 2.000,- fyrir hvert borð.
Greiða þarf þegar pöntun fer fram.
Borðapantanir eru í síma 696-8445

Brokkkórinn kemur okkur í jólagírinn með því að syngja nokkur lög.
Veitingasala á staðnum

Hlökkum til að sjá ykkur,
undirbúningsnefndin