Knapar ársins 2011

24. október 2011
Fréttir
Sigurbjörn Bárðarson var knapi ársins 2010.
Nú hefur valnefnd sú er hefur það verk á sínum höndum að tilnefna knapa til verðlauna á Uppskeruhátíð hestamanna, gefið út tilnefningar sínar. Nú hefur valnefnd sú er hefur það verk á sínum höndum að tilnefna knapa til verðlauna á Uppskeruhátíð hestamanna, gefið út tilnefningar sínar.
Sem fyrr eru tilnefndir fimm knapar í sex flokkum.
 
Verk nefndarinnar er mikið og í ár var það sérlega vandasamt vegna þeirra aðstæðna að haldin voru bæði landsmót og heimsmeistaramót, sem er jú einsdæmi. Baráttan um titlana er því gífurlega hörð í ár og spennan um það hver hreppir svo titlana í hverjum flokki fyrir sig mun stigmagnast fram að hátíðinni.

Hér fyrir neðan kemur listinn yfir tilnefnda knapa í hverjum flokki og er nöfnum þeirra raðað í stafrófsröð.

Efnilegasti knapi ársins
Arna Ýr Guðnadóttir
Arnar Bjarki Sigurðarson
Helga Una Björnsdóttir
Kári Steinsson
Rakel Natalie Kristinsdóttir

Kynbótaknapi ársins
Daníel Jónsson
Erlingur Erlingsson
Jakob Svavar Sigurðsson
Sigurður Vignir Matthíasson
Þórður Þorgeirsson

Íþróttaknapi ársins
Árni Björn Pálsson
Eyjólfur Þorsteinsson
Hinrik Bragason
Jóhann Rúnar Skúlason
Sigursteinn Sumarliðason

Skeiðknapi ársins
Bergþór Eggertsson
Daníel Ingi Smárason
Elvar Einarsson
Sigurbjörn Bárðarson
Ævar Örn Guðjónsson

Gæðingaknapi ársins
Guðmundur Björgvinsson
Hinrik Bragason
Sigurbjörn Bárðarson
Sigurður Sigurðarson
Sigursteinn Sumarliðason

Knapi ársins
Eyjólfur Þorsteinsson
Hinrik Bragason
Jóhann Rúnar Skúlason
Sigurður Sigurðarson
Sigursteinn Sumarliðason