Kirkjureið í Seljakirkju 15.maí

09. maí 2011
Fréttir
Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður næsta sunnudag. Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu. Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður næsta sunnudag. Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu.

Guðsþjónustan hefst kl.14. Sr.Valgeir Ástráðsson stýrir guðsþjónustunni ásamt sr.Ólafi Jóhanni Borgþórssyni.  Haraldur Örn Gunnarsson, guðfræðingur, framkvæmdastjóri Landsmóts, prédikar. Brokkkórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar. Allt er það hestafólk sem leggur hönd á plóg. Að lokinni guðsþjónustunni verður kirkjukaffi að vanda.  Lagt verður af stað úr hesthúsahverfunum kl. 12:30, -í Víðidal frá skiltinu, í Gustshverfi við reiðskemmuna og Andvarafólk frá Heimsenda. Kirkjureiðin er góður reiðtúr fyrir alla fjölskylduna. Full ástæða er til að taka þátt í góðum reiðtúr og njóta stundarinnar í kirkjunni.