Keppnismót fatlaðra ungmenna 2011

23. maí 2011
Fréttir
Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt kynna Keppnismót fatlaðra ungmenna 2011. Mótið verður haldið föstudaginn 27. maí 2011 kl. 17:00 í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ. Hestamannafélagið Hörður í samstarfi við Hestamennt kynna Keppnismót fatlaðra ungmenna 2011. Mótið verður haldið föstudaginn 27. maí 2011 kl. 17:00 í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ.

Keppnin er fimimót og er haft til viðmiðunar keppnisreglur frá alþjóðlegum samböndum sem sérhæfa sig í keppnishaldi fyrir fatlaða reiðmenn eða International Para-Equestrian Association.  Keppt er í mismunandi fötlunarflokkum. Mótið er haldið í fyrsta sinn á Íslandi og verður vonandi hvatning fyrir alla þá sem eiga við einhvers konar fötlun að stríða og hafa áhuga á hestamennsku sem keppnisíþrótt meðal annars.

Í ár eru alls 6 keppendur sem keppa:

Sonja Sigurðardóttir
Sunnefa Gerhardsdóttir
Sigtryggur Einar Sævarsson
Arnór Freyr Arnarsson
Gunnar Logi Tómasson
Kristín Hrefna Halldórsdóttir

ALLIR VELKOMNIR AÐ KOMA OG FYLGJAST MEÐ