Kennslusýningar og jólamatur á laugardaginn

14. desember 2023

Nú styttist heldur betur í menntadag A-landsliðis Íslands í hestaíþróttum sem fram fer laugardaginn 16. des í Lýsis höllinni Víðidal. Þar munu okkar fremstu knapar vera með kennslusýningar, auk þess sem skrifað verður undir samstarfssamning milli LH og Háskólans á Hólum og reiðkennari ársins verður heiðraður.

Í hádeginu verður hægt að kaupa frábæran jólahádegisverð framreiddan af snillarkokkum fyrir einungis 3500 krónur.

Húsið opnar klukkan 10:00 á dagskránni verða eftirfarandi kennslusýningar:

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir: Grunnþjálfun

Gústaf Ásgeir Hinriksson: Hliðarstjórn og hliðarjafnvægi

Ragnhildur Haraldsdóttir: Form

Sigurður Sigurðarson: Sótt í rýmið

Hádegishlé

Elvar Þormarsson: Lykill að vegferð óvissunnar

Sara Sigurbjörnsdóttir: Að hafa trú á verkefninu – lokaspretturinn

Teitur Árnason: Full afköst á skeiði

Jóhanna Margrét Snorradóttir: Heimsmeistaratitill – Hvað liggur að baki

 

Dagskrálok um kl 15:00

 

Miðaverð er 5000 krónur og rennur allur ágóði til landsliðisins.

Kaupa miða