Kappreiðar hjá Sindra - dagskrá

05. júní 2012
Fréttir
Á Hestaþingi Sindra 2012 sem haldið verður 15-16. júní verða haldnar kappreiðar. Keppt verður í 100m fljótandi skeiði, 150m og 250m skeiði, 300m brokki og 300m stökki.

Á Hestaþingi Sindra 2012 sem haldið verður 15-16. júní verða haldnar kappreiðar.

Keppt verður í 100m fljótandi skeiði, 150m og 250m skeiði, 300m brokki og 300m stökki. Í fyrsta skiptið verður notast við rafrænan tímatökubúnað og kappreiðarnar því löglegar og að öllum líkindum síðasti séns að ná tíma fyrir landsmót þar sem 16. júní er síðasti skráningardagur á Landsmót. Hlaupabrautin er nýlega uppgerð og í gríðarlega góðu standi.

Hvetjum við því alla sem hafa áhuga á Kappreiðum að fjölmenna því Kappreiðarnar eru opnar öllum. Nánari upplýsinar eru í auglýsingu fyrir hestaþing Sindra á Hestafréttir.is, lhhestar.is og www.123.is/sindri.is

 

Dagskrá:

Föstudagur 15. júní:

Kl 10:30 Forkeppni í B- flokki gæðinga – úrtaka fyrir landsmót.

Kl 12:30 Hlé og undirbúningur fyrir hópreið

Kl 13:00 Hópreið, mótsetning               

Kl 14:00 Forkeppni í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna- og A- flokki.- úrtaka fyrir landsmót.

Skráningargjöld fyrir ungmenna- A- og B- flokk er 2500 kr á 1. hest, 2000.- kr á 2. hest knapa, 1.500.- á 3. hest knapa, 1.000.- kr á  4. hest knapa og svo framv. ( aðgangseyrir er innifalinn fyrir knapa og fær hann afhent armband í miðasölu. Skráningargjöld verða samtals að hámarki kr 15.000.- á fjölskyldu þ.e. foreldra og börn alls)

 Athugið: Keppnisröð er samkvæmt mótsskrá.

Kl 19:00 Töltkeppni

Töltkeppni sem er opin öllum, keppt er til úrslita. Peningverðlaun í 1. sæti. Skráningargjald 3000 kr.

 

Laugardagur 16. júní

Kl 11:00 úrslit í B- flokki, Polla-, barna-, unglinga-, ungmenna og A- flokki

Kl 14:30 Kappreiðar - opnar öllum

100 m skeið- með fljótandi starti. skráningargjald 500 kr

150 m skeið- 1. verðlaun 25.000 kr - Skráningargjald 2000 krónur.

300 m brokk - Skráningargjald 500 kr á hest

300 m stökk - Skráningargjald 500 kr á hest

250 m skeið - Skráningargjald 500  kr á hest.

 

Skráning er hjá:

Dóru á netfangið dorajg@simnet.is og í síma 895-5738

Síðasti skráningardagur í hringvallargreina er á miðnætti Þriðjudaginn 12. júní. Ekki verður tekið við skráningum eftir það. Hægt verður að skrá sig í kappreiðar líka á kappreiðadag. Við skráningu þarf að koma fram IS númer hest, nafn og kennitala knapa.

Skráningargjöld greiðist inn á 0317-13-302622. Kt. 540776-0169. Þar sem fram kemur nafn knapa.

 

Aðgangseyrir er kr 2.000.- fyrir tvo daga en 1.500.- fyrir einn dag. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.