Járninganámskeið hjá Funa

01. febrúar 2012
Fréttir
Gestur Páll Júlíusson dýralæknir og járningarmeistari verður með járningarnámskeið dagana 3. - 4. febrúar. Gestur Páll Júlíusson dýralæknir og járningarmeistari verður með járningarnámskeið dagana 3. - 4. febrúar.
 
Námskeiðið hefst með bóklegri kennslustund í Funaborg á föstudagskvöldinu og á laugardeginum verður verkleg kennsla haldin í hesthúsinu að Hólshúsum.

Verð er 15.000 kr.

Námskeiðið er öllum opið, óháð félagaaðild.

Skráning er á netfangið namskeid@funamenn.is til kl. 13:00 á föstudag (3. febrúar).

Sjá nánar inni á funamenn.is
 
Fræðslunefnd Funa