Jarðbönn og harðindi

29. desember 2011
Fréttir
Vetur. Mynd: HKG.
Hygla þarf útigangshrossum - Bændur og aðrir umráðamenn útigangshrossa eru beðnir að huga vel að hrossunum nú þegar víða eru jarðbönn. Hygla þarf útigangshrossum - Bændur og aðrir umráðamenn útigangshrossa eru beðnir að huga vel að hrossunum nú þegar víða eru jarðbönn.

Nauðsynlegt er að gefa útigangi við þessar aðstæður, sérstaklega fylfullum og/eða mjólkandi hryssum og ungviði. 

Útigangshross þurfa að vera í ríflegum holdum á þessum árstíma (holdastig 3,5-4) og hafa aðgang að skjóli.

Héraðsdýralæknum berst nú fjöldi ábendinga um hross sem híma fóðurlaus í girðingum þar sem enga beit er að hafa. Umráðamenn hrossa er hvattir til að bregðast við og útvega hrossunum fóður eins og skylt er skv. landslögum.

Sigríður Björnsdóttir
Dýralæknir hrossasjúkdóma