Ísólfur með sýnikennslu í Andvara fimmtudaginn 3. des.

26. nóvember 2009
Fréttir
Ísólfur Líndal, tamningamaður og reiðkennari við Hólaskóla, verður með sýnikennslu á vegum Félags tamningamanna í reiðhöllinni á Kjóavöllum fimmtudaginn 3. desember nk. Sýningin hefst kl. 20 og er miðaverði stillt í hóf, aðeins kr. 1.500, en skuldlausir félagar í Andvara og FT fá miðann á kr. 1.000. Ísólfur Líndal, tamningamaður og reiðkennari við Hólaskóla, verður með sýnikennslu á vegum Félags tamningamanna í reiðhöllinni á Kjóavöllum fimmtudaginn 3. desember nk. Sýningin hefst kl. 20 og er miðaverði stillt í hóf, aðeins kr. 1.500, en skuldlausir félagar í Andvara og FT fá miðann á kr. 1.000. Ísólfur mun fjalla um nýjustu strauma og mikilvæg atriði í frumtamningu og hvernig tengingin er í gegnum gangsetningu yfir í þjálfaðan hest.
Sams konar sýnikennsla fór fram á Hólum fyrir skemmstu og þótti Ísólfur fara á kostum þar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir hestamenn til að kynna sér nýjungar og hita upp fyrir vetrarþjálfunina.

Allir eru velkomnir - tilvalið að koma saman og eiga góða kvöldstund, kaffiveitingar á staðnum.

Félag tamningamanna