Íslandsmótið í hestaíþróttum 2010

14. júlí 2010
Fréttir
Skráning er hafin á Íslandsmótið í hestaíþróttum sem verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Skráning er hafin á Íslandsmótið í hestaíþróttum sem verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst. Frá framkvæmdanefnd ÍM2010
  
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið að Sörlastöðum Í Hafnarfirði dagana 25.-28. ágúst.
Hér birtast nokkrir punktar um framkvæmd mótsins.


• Skráning fer fram hjá aðildarfélögum LH sem auglýsa skráningu hjá sér. Síðasti skráningardagur er 16. ágúst (félög skrá í sportfeng, mótsnúmer er IS2010SOR054). 
Leggja á inn á reikning 0135-26-002870, kt. 640269-6509 og senda staðfestingu á brs2@hi.is

• Skráningargjald er 4.000 krónur

• Keppendum stendur til boða að fá hesthúspláss með heyi og spæni nálægt keppnisvelli. Þeir sem vilja nýta sér það hafi samband í síma í síma 698-3168 / 698-3168 fyrir 20. ágúst.

• Engin einkunnalágmörk eru á mótið.

Framkvæmdanefnd ÍM