Íslandsmót yngri flokka - spurningar og svör

11. júlí 2013
Fréttir
Arna Ýr og Þróttur. Mynd: Eiðfaxi
Enn styttist í Íslandsmót yngri flokka og líkur skráningum á miðnætti í kvöld. Hér eru svör við nokkrum spurningum sem við höfum fengið undanfarið.

Enn styttist í Íslandsmót yngri flokka og líkur skráningum á miðnætti í kvöld. Hér eru svör við nokkrum spurningum sem við höfum fengið undanfarið.

  • Það er aðeins EINN knapi á vellinum í öllum flokkum. 
  • EKKI verður riðið eftir þul.
  • Fimmgangurinn mun fara fram á 250m vellinum, skeiðið líka.
  • Hesthúsapláss þarf að panta hjá elfa@nett.is.
  • Mótsstjóri er Jónsteinn Aðalsteinsson og er hann með 897-4748.


Íslandsmótsnefnd Léttis