Íslandsmót yngri flokka

24. júní 2016

HESTAMANNAFÉLAGIÐ SKUGGI HELDUR ÍSLANDSMÓT YNGRI FLOKKA Í BORGARNESI DAGANA 14. – 17. JÚLÍ 2016
Mótsnefndin mun kappkosta að mótið verði hið glæsilegasta og fari fram við bestu aðstæður sem svæðið býður upp á. Boðið verður upp á hesthúspláss og hey, eins verður seldur spænir á svæðinu.

KEPPNISGREINAR OG FLOKKAR

  • Barnaflokkur - Tölt T3, Fjórgangur V2, Fimi
  • Unglingaflokkur – Tölt T3, Tölt T4 (skráð T2), Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Gæðingaskeið PP1, Fimi A
  • Ungmennaflokkur - Tölt T3, Tölt T4 (skráð T2), Fjórgangur V2, Fimmgangur F2, Gæðingaskeið PP1, Fimi A2, 100 m. skeið (flugskeið)

Skráningarfrestur er til miðnættis 5. júlí en opið er fyrir skráningu frá 22. júní.
Skráningar fara fram í gegn um Sportfeng og er Skuggi valinn sem mótshaldari í upphafi skráningarferils og velja síðan Íslandsmót yngri flokka.

Skráningargjald í öllum flokkum og greinum er kr. 5.000.- og er einungis hægt að greiða með millifærslu. Senda þarf kvittun
á netfangið kristgis@simnet.is

Tjaldsvæði verður frátekið fyrir keppendur þar sem hægt verður að tengjast rafmagni. Í Borgarnesi er í boði fjölbreytt úrval afþreyingar fyrir alla fjölskylduna og eins verða kvöldvökur fyrir keppendur á svæðinu þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi þessa daga sem mótið stendur.