Íslandsmót yngri flokka

16. júlí 2012
Fréttir
Íslandsmót yngri flokka 2012 verður haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 26. - 29. júlí 2012. Mótið er öllum opið sem eru 21 árs og yngri.

Íslandsmót yngri flokka 2012 verður haldið á Gaddstaðaflötum við Hellu dagana 26. - 29. júlí 2012. Mótið er öllum opið sem eru 21 árs og yngri.
 
Skráning hefst mánudaginn 16. júlí og lýkur fimmtudaginn 19. júlí kl 23:59. Skráningargjald er 4000 kr á hverja skráningu og er skráningargjald greitt um leið og skráð er. Öll skráning og greiðsla skráningargjalda fer fram á skraning.is undir viðburði Íslandsmót yngri flokka.
 
Keppt er í eftirfarandi flokkum
Börn: tölt T1, fjórgangur og fimi A.
Unglingar: tölt T1, tölt T4, fjórgangur, fimmgangur, fimi A, 100m skeið og gæðingaskeið.
Ungmenni: tölt T1, tölt T4, fjórgangur, fimmgangur, fimi A2, 100m skeið og gæðingaskeið.
 
Stefnt er að því að tölt T1 í öllum aldursflokkum muni vera einn keppandi inná vellinum í einu, jafnvel einnig í fjórgangi ungmenna. En í öllum öðrum hringvallargreinum verði 3 keppendur inná vellinum í einu. Mun þetta allt fara eftir fjölda skráninga í hverjum flokki.
 
Klár í keppni er orðin hluti af Landsmóti og verður einnig á Íslandsmóti fullorðna í ár. Við hjá Geysir höfum ákveðið að taka þátt í þessu átaki um að vera einungis að keppa á heilbrigðum hestum og höfum fengið dýralæknir í samstarf við okkur sambandi við það. Mun þetta verða með svipuðu sniði og Klár í keppni, þannig að dýralæknir mun skoða öll hross sem taka þátt í keppni á Íslandsmóti Yngriflokka sem fram fer á Gaddstaðaflötum við Hellu. Skal þessi heilbrigðisskoðun fara fram á staðnum og ákveðnum tíma fyrir hverja grein. Með þessu viljum við leggja okkar af mörkum við að fræða ungviðið um að heilbrigði hestsins sé í fyrirrúmi þegar í keppni er komið. Verða tímasetningar á þessum heilbrigðisskoðunum auglýstar með dagskránni þegar hún er tilbúin.
 
Fyrir þá sem vantar hesthúspláss, beitarhólf eða eru að velta fyrir sér gistingu á svæðinu geta haft samband við Guðmund Guðmundsson í síma 8614334.
 
Aðalstyrktaraðilar mótsins eru:
Margrétarhof
Lúðvík Bergmann (Búaðföng, Bakkakot, Foss og Hungurfit)
Mótanefnd