Íslandsmót yngri flokka

05. júlí 2011
Fréttir
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2011 fer fram á Mánagrund, félagssvæði hestamannafélagsins Mána dagana 21.-24.júlí. Skráning hefst 4.júlí og fer fram í gegnum tölvupóst og skal senda skráningu á mani@mani.is. Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2011 fer fram á Mánagrund, félagssvæði hestamannafélagsins Mána dagana 21.-24.júlí. Skráning hefst 4.júlí og fer fram í gegnum tölvupóst og skal senda skráningu á mani@mani.is.

Skráningargjald er kr. 4.500 á hverja skráningu og greiðist við skráningu. Síðasti skráningardagur er 12.júlí.
Hægt verður að hringja inn skráningar þriðjudagskvöldið 12.júlí milli 19-22. Símanúmer verða birt síðar.

Koma þarf fram:
Nafn og kennitala knapa, auk símanúmers.
IS númer hests, keppnisgrein og uppá hvora hönd viðkomandi hyggst keppa.
Kreditkortanúmer og gildistími.
Einnig er hægt er að leggja inn á reikning Mána 0121-26-3873  kt.690672-0229.
Staðfestingu á greiðslu verður að senda á sama netfang og skráningar, mikilvægt er að setja í skýringu kennitölu knapa.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur      
Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur   
Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur        
Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur                   
Skeið 100m (flugskeið) unglinga og ungmenna      
Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur                     
Fimikeppni A2 ungmennaflokkur                                 
Töltkeppni T4 unglinga og ungmenna

Mótsstjóri er Sigurður Kolbeinsson s. 869-3530        
Umsjónarmaður hesthúsplássa er Bjarni Stefánsson s.866-0054.
Tjaldsvæði eru við gistiheilmilið Alex http://www.alex.is/forsida.asp  þar er einnig hægt að leigja litla kofa.
Auk þess er tjaldsvæði á Garðskaga  http://www.sv-gardur.is/Ferdathonusta/Tjaldstaedi/

Verið velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur.

Mótanefnd Mána