Íslandsmót ungmenna og fullorðinna 2024

25. mars

Hestamannafélagið Fákur hefur tekið að sér framkvæmd Íslandsmóts Ungmenna og fullorðinna 25-28 júlí 2024. Mótið mun fara fram í Víðidal í Reykjavík og verður allt hið glæsilegasta.

Þórir Örn Grétarsson Fáksfélagi verður framkvæmdarstjóri mótsins og hefur hann fengið til liðs við sig úrvalshóp fólks sem kemur að framkvæmdinni undir forystu Fáksmanna. Eins og kunnugt er fer Landsmót hestamanna fram á sama mótssvæði í byrjun júlí og svæðið því í frábæru standi og eins og allir hestamenn þekkja, þá eru sumarkvöld í Víðidalnum með rjóma íslenskrar hestamennsku í braut upplifun sem erfitt er að toppa.

Fjölmennum í Víðidal og eigum frábæra daga.