Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum 2009 - skráning hafin

04. júní 2009
Fréttir
Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 16.-18. júlí 2009 á Hlíðarholtsvelli á Akureyri. Framkvæmdaraðili mótsins er Hestamannafélagið Léttir. Íslandsmót í hestaíþróttum fyrir fullorðna verður haldið 16.-18. júlí 2009 á Hlíðarholtsvelli á Akureyri. Framkvæmdaraðili mótsins er Hestamannafélagið Léttir.
Hvert hestamannafélag fyrir sig sér um skráningu og óskum við eftir því að hvert félag skrái sína þátttakendur inn í Sportfeng, mótanúmerið er IS2009LET056.
Skráningargjald er 4000 kr. á hverja grein og á að leggja það inn á reikning 0302-26-15841 kt. 430269-6749 í einni greiðslu frá hverju félagi.
Skráningu lýkur á miðnætti 2. júlí

Hestamannafélagið Léttir