Íslandsmót fullorðinna einn flokkur

16. október 2008
Fréttir
Keppt verður í einum flokki á Íslandsmóti fullorðinna á næsta ári, og væntanlega framvegis. Tillaga Léttis þess efnis var samþykkt á 56. landsþingi LH. Einnig var samþykkt að keppnisnefnd LH ákveði lágmörk í keppnisgreinum.Keppt verður í einum flokki á Íslandsmóti fullorðinna á næsta ári, og væntanlega framvegis. Tillaga Léttis þess efnis var samþykkt á 56. landsþingi LH. Einnig var samþykkt að keppnisnefnd LH ákveði lágmörk í keppnisgreinum.Keppt verður í einum flokki á Íslandsmóti fullorðinna á næsta ári, og væntanlega framvegis. Tillaga Léttis þess efnis var samþykkt á 56. landsþingi LH. Einnig var samþykkt að keppnisnefnd LH ákveði lágmörk í keppnisgreinum.

Til að koma þessum breytingum í gegn þurfti að gera breytingu á reglugerð 5.2 fyrir Íslandsmót. Var sú breytingartillaga samþykkt. Hún er svohljóðandi:

„Á Íslandsmóti fullorðinna skal keppt í einum styrkleikaflokki. Á Íslandsmóti skal keppt í þeim greinum hestíþrótta sem skilgreindar eru eru í kafla 8 til 8.8 í alþjóðlegum keppnisreglum LH Íslandsmóti skal skipt upp í mót fullorðinna annars vegar og barna unglinga og ungmenna hins vegar. Á Íslandsmóti barna unglinga og ungmenna skal keppt í keppnisreglum þeim sem skilgreindar eru í hverjum aldursflokki. Heimilt er að veita undanþágu til þess að halda mótin saman, sé þess ekki nokkur kostur að halda þau í sitt hvoru lagi.

Einungis þeir sem náð hafa tiltekinni lágmarkseinkunn (lágmarkstíma í skeiðgreinum) hafa rétt til þátttöku. Keppnisnefnd verði falið að ákveða lágmörk á hverju ári í febrúar, en það verði ekki bundið í lögum, til þess að hægt verði að bregðast við of mikilli/lítilli þátttöku með því að hækka/lækka lágmörk. Þess verði gætt í upphafi að lágmörk verði ekki of ströng. Árangur frá árinu áður telst fullgildur.“