Icelandair samstarfsaðili "Hestahátíð í Reykjavík"

20. janúar 2011
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga skrifaði nú á dögunum undir samstarfssamning við Icelandair - Icelandair Group varðandi aðkomu þess að viðburðinum „Hestahátíð í Reykjavík“. Landssamband hestamannafélaga skrifaði nú á dögunum undir samstarfssamning við Icelandair - Icelandair Group varðandi aðkomu þess að viðburðinum „Hestahátíð í Reykjavík“.

Icelandair, sem hefur í áratugi verið leiðandi í flugi til og frá landinu ásamt því að bjóða uppá fjölbreytta og framúrskarandi hótelgistingu fyrir ferðamenn, mun verða einn af stærstu bakhjörlum viðburðarins.

Landssamband hestamannafélaga þakkar Icelandair - Icelandair Group fyrir stuðninginn með von um farsælt samstarf.

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir skrifaði undir samninginn fyrir hönd Icelandair-Icelandair Group og Gunnar Sturluson, varaformaður, fyrir hönd LH.