Hýruspor opnar heimasíðu

03. desember 2009
Fréttir
mynd: www.icehorse.is
Hýruspor samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra sem stofnuð voru í janúar sl. hafa nú opnað heimasíðu www.icehorse.is. Þar er m.a. að finna flokka yfir þá þjónustu sem meðlimirnir Hýruspors bjóða upp á. Hýruspor samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra sem stofnuð voru í janúar sl. hafa nú opnað heimasíðu www.icehorse.is. Þar er m.a. að finna flokka yfir þá þjónustu sem meðlimirnir Hýruspors bjóða upp á. Hýruspor eru samtök sem ætla sér stóra hluti í framtíðinni til að efla hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra með samtakamætti sínum.

Jón Þór Bjarnason á Sauðárkróki hefur starfað fyrir samtökin og er heimasíðan m.a. afrakstur þeirrar  vinnu. Þá hafa samtökun ráðið Halldór Þorvaldsson til að vinna að markaðstarfi o.fl.
Stjórn Hýruspors skipa: Páll Dagbjartsson Varmahlíð formaður, Jón Gíslason Hofi gjaldkeri, Jóhann Albertsson Gauksmýri ritari og meðstjórnendur eru Hjörtur Karl Einarsson Blönduósi og Arna Björk Bjarnadóttir Ásgeirsbrekku.