Hvar verður LM 2016?

26. október 2011
Fréttir
Landssamband hestamannafélaga auglýsir eftir umsóknum vegna Landsmóts 2016. Landssamband hestamannafélaga auglýsir eftir umsóknum vegna Landsmóts 2016.
Umsókn skal fylgja greinargerð, teikningar af viðkomandi svæði og stutt lýsing á staðarháttum.

Umsækjendum er bent á að kynna sér vel lög og reglugerðir LH er varða undirbúning og framkvæmd landsmóta sem finna má á heimasíðu LH, www.lhhestar.is

Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sín svæði fram, skulu ásamt fulltrúum viðkomandi sveitastjórnar mæta til að kynna sitt svæði og þá möguleika sem það býður uppá fyrir Landsmót 2016 á skrifstofu LH.

Frestur til að kynna og leggja fram umsókn rennur út 30. nóvember 2011.

Allar frekari upplýsingar má fá á skrifstofutíma í síma 514-4030 hjá Oddrúnu Ýr Sigurðardóttur.

Auglýsing í pdf formi - smellið hér


Landssamband hestamannafélaga