Hulda og Jón Bjarni leiða slaktaumatöltið

16. júní 2009
Fréttir
Hulda Gústafsdóttir og Jón Bjarni Smárason eru efst eftir fyrri umferð í slaktaumatölti. Hulda Gústafsdóttir og Jón Bjarni Smárason eru efst eftir fyrri umferð í slaktaumatölti. Keppni er lokið í slaktaumatölti á úrtöku fyrir Heimsmeistaramót. Hulda Gústafsdóttir á Völsungi frá Reykjavík er efst með 7,57, annar er Eyjólfur Þorsteinsson á Ögra frá Baldurshaga með 7,30 og þriðji er Sigurður Sigurðarson á Herði frá Eskiholti II með einkunnina 7,27.
Jón Bjarni Smárason á Hvata frá Hafnarfirði er efstur í ungmennaflokki með einkunnina 6,83.

Sæti Nafn Hestur
Einkunn
1 Hulda Gústafsdóttir Völsungur frá Reykjavík 7,57
2 Eyjólfur Þorsteinsson Ögri frá Baldurshaga
7,30
3 Sigurður Sigurðarson Hörður frá Eskiholti II
7,27
4 Ísleifur Jónasson Svalur frá Blönduhlíð
7,03
5 Anna Björk Ólafsdóttir Feykir frá Ármóti
6,37
6 Líney María Hjálmarsdóttir Vaðall frá Íbishóli
5,93





Sæti Nafn Hestur
Einkunn
1 Jón Bjarni Smárason Vafi frá Hafnarfirði UM 6,83
2 Arnar Bjarki Sigurðarson Gammur frá Skíðbakka 3 UM 6,27