Hrossaræktarfundur í Þingborg

11. mars 2009
Fréttir
Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur.
Opinn fundur á vegum Félags hrossabænda og Bændasamtaka Íslands um málefni hrossaræktarinnar verður haldinn í Þingborg í kvöld  11. mars kl. 20:30. Opinn fundur á vegum Félags hrossabænda og Bændasamtaka Íslands um málefni hrossaræktarinnar verður haldinn í Þingborg í kvöld  11. mars kl. 20:30.


Frummælendur á fundinum verða Kristinn Guðnason formaður Félags hrossabænda og fagráðs í hrossarækt og Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ. Kaffi í boði Hrossaræktarsamtaka Suðurlands.

Hrossaræktendur og aðrir áhugamenn um hrossarækt fjölmennum á fundinn og tökum afstöðu til mála eins og breytinga á sýningafyrirkomulagi  og vægis  einstakra eigninleika.     

Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands