Hross fyrir tamninganám Hólaskóla

17. ágúst 2011
Fréttir
Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild hafa annast undir handleiðslu reiðkennara skólans. Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild hafa annast undir handleiðslu reiðkennara skólans.
Á komandi skólaári verða gerðar nokkrar breytingar á námskeiðunum í frumtamningu og þjálfun, sem í stað tveggja námskeiða áður verður nú skipt í þrennt:
  1. For- og frumtamning. Grunnvinna, sem miðar fyrst og fremst að því að gera trippin reiðfær. Samhliða er lögð       áhersla á teymingar og aðra vinnu við hendi.
  2. Grunnþjálfun. Megináhersla er lögð á að gera hrossin góð í beisli, þjálfa samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, sem og gangsetningu. Enn frekari uppbygging þreks, jafvægis og vilja.
  3. Þjálfun. Alhliða þjálfum reiðhests. Bætt svörun ábendinga, jafnvægi, hreyfingar og rými á öllum gangtegundum.
Hvert námskeið stendur yfir í 5 – 7 vikur (í stað 10 áður). Það er álit starfsmanna skólans að þessi breyting stuðli að því að bæði kennslan og þjálfun hrossanna verði í senn markvissari og árangursríkari, auk þess sem valkostum hestaeigenda fjölgar.

Í mörgum tilvikum geta trippi sem koma í frumtamningar haldið rakleiðis áfram í grunnþjálfun, en það er þó ekki skilyrði. Gert verður u.þ.b. tveggja vikna hlé á milli þessara námskeiða.

Sú breyting verður einnig í ár, að ekki er nauðsynlegt að frumtamningatrippin komi fortamin eða bandvön. Það er þó æskilegast.

Dagsetningar á haustönn 2011
For- og frumtamningar:
Trippunum sé komið í Hóla fimmtudaginn 1. september, fyrir kl. 16:00.
Skil laugardaginn 22. október, kl. 14:00.

Grunnþjálfun:
Hrossunum sé komið í Hóla laugardaginn 22. október, á milli kl. 10:00 og 14:00.
Skil laugardaginn 10. desember, kl. 13:00.

Þjálfun:
Hrossunum sé komið í Hóla laugardaginn 22. október, á milli kl. 10:00 og 14:00.
Skil laugardaginn 10. desember, kl. 13:00.

Forkröfur
For- og frumtamningar: Trippin þrufa að hafa náð góðum þroska. Æskilegt er að þau séu undan 1. verðlauna stóðhestum.

Grunnþjálfun: Framhald frumtamningar. Trippin skulu vera vel reiðfær utan dyra og teymast vel með manni.

Þjálfun: Fyrir meira tamin hross.
Hrossin þurfa að vera heilbrigð og laus við galla, svo sem slægð, hrekki, húslesti eða áberandi viðkvæmni eða kaldlyndi. Hross sem koma í grunnþjálfun eða þjálfun skulu skilyrðislaust vera í þjálfun, og járnuð.

Kostnaður (ber ekki virðisaukaskatt)
Frumtamningar: Kr. 60.000.
Grunnþjálfun: Kr. 50.000.
Þjálfun: Kr. 60.000.
Innifalið: Allt uppihald, auk járninga (ef við á) og ormalyfsgjafar fyrir allt tímabilið.

Þeim sem hafa hug á að koma að hrossum í eitthvert þessara námskeiða, er bent á að senda tölvupóst á netfangið toti@holar.is, sem allra fyrst. Skráningu skal fylgja IS-númer ásamt upplýsingum um tamningastig hrossins. Einnig má hafa samband í síma 891 9197 (Þórarinn) eða 898 8876 (Mette).