Hósti í folöldum krefst aukins eftirlits

11. ágúst 2010
Fréttir
Eigendur og umsjónarmenn eru hvattir til að fylgjast vel með folöldum. Ástæða er til að ætla að þau geti í einhverjum tilfellum fengið lungnabólgu upp úr smitandi hósta og jafnvel drepist í kjölfarið ef meðhöndlun hefst ekki í tæka tíð. Eigendur og umsjónarmenn eru hvattir til að fylgjast vel með folöldum. Ástæða er til að ætla að þau geti í einhverjum tilfellum fengið lungnabólgu upp úr smitandi hósta og jafnvel drepist í kjölfarið ef meðhöndlun hefst ekki í tæka tíð. Sérstaklega á þetta við um folöld sem koma úr stóðhestagirðingum þar sem smitálag er oft mikið.
Ef vart verður við mikinn hósta eða óeðlileg öndunarhljóð (korr) í folöldunum er nauðsynlegt að kalla til dýralækni sem metur hvort hefja beri meðhöndlun. Stóðhestshaldarar eru og minntir á ábyrgð sína í þessu sambandi.

Fyrir hönd Matvælastofnunar,
Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma.