HESTAMENN ATHUGIÐ !

24. febrúar 2009
Fréttir
Opinn fundur með æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga er á fundaherferð um landið á næstu vikum í febrúar og mars. Opinn fundur með æskulýðsnefnd Landssambands hestamanna Æskulýðsnefnd Landssambands hestamannafélaga er á fundaherferð um landið á næstu vikum í febrúar og mars.

Fundirnir verða opnir öllum áhugamönnum um æskulýðsstarf í hestamannafélögunum og er það von nefndarinnar að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Æskulýðsnefndir félaganna eru sérstaklega hvattar til að mæta.

Fundur í boði Dreyra verður haldinn þann 26. febrúar næstkomandi kl. 20:00 í félagsheimilinu Æðarodda.

 

Félög: Dreyri, Faxi, Glaður, Kinnskær, Skuggi, Snæ-fellingur og Þytur.

 

Hlökkum til að sjá ykkur.Æskulýðsnefnd LH