Hestadagar í Reykjavík

17. mars 2010
Fréttir
Hestadagar í Reykjavík. Mynd: www.mbl.is
Viðburðurinn Hestadagar í Reykjavík verður haldinn árlega í Reykjavík frá og með mars á næsta ári en Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær tillögu þess efnis.  Segir borgarstjórn að með þessu sé stigið mikilvægt skref í kynningu á íslenska hestinum í vetrarbúningi. Viðburðurinn Hestadagar í Reykjavík verður haldinn árlega í Reykjavík frá og með mars á næsta ári en Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í gær tillögu þess efnis.  Segir borgarstjórn að með þessu sé stigið mikilvægt skref í kynningu á íslenska hestinum í vetrarbúningi. Hestadagar í Reykjavík muni glæða borgina nýju lífi innan borgarmarkanna þar sem hesturinn verður í aðalhlutverki og muni honum bregða fyrir á óvenjulegum stöðum á Hestadögum, s.s. í miðborginni, við verslunarmiðstöðvar og skóla borgarinnar, auk þátttöku í sýningum og keppnum á félagssvæði Fáks á Víðivöllum. Auk þess muni borgarbúum og gestum gefast einstakt tækifæri til að komast í nána snertingu við íslenska hestinn í borgarumhverfinu.

Vinsældir íslenska hestsins geta þýtt auknar tekjur af ferðamönnum.

Samkvæmt tilkynningu frá borgarstjórn varð marsmánuður meðal annars fyrir valinu af þeirri ástæðu að þá eru flest hross í húsi og þjálfun, skólar starfandi og því góður tími til að kynna hestinn fyrir nemendum.

Síðast en ekki síst geti ferðaþjónustan notið góðs af þar sem mars er utan við hefðbundinn ferðamannatíma.

Vonast borgaryfirvöld eftir góðu samstarfi við hagsmunaaðila í hestamennsku sem sjái tækifæri í því að markaðssetja starfsemi sína í höfuðborginni með tilkomu Hestadaga í Reykjavík.

frétt tekin af www.mbl.is